COSI ICELAND
Gaslukt Cosiscoop original - leirlituð
Ekki tókst að hlaða upplýsingum um afhendingu
Klassísk leirlituð lukt með lifandi loga
Cosiscoop Original gasluktin skapar notalega stemningu á borðinu með lifandi loga og stílhreinu útliti. Svartur málmur og glært gler falla vel að ólíkum stílum, hvort sem er á pallinum, í garðinum eða inni við þar sem aðstæður uppfylla leiðbeiningar framleiðanda.
Luktinni fylgja gler og skrautsteinar. Hún gengur fyrir 190 g gashylki með öryggisloka og logar í um 5–6 klukkustundir á einu hylki, eftir notkun.
Skoðaðu mál, fylgihluti og upplýsingar um gas og örugga notkun í fellireitunum hér fyrir neðan.
Mál og tæknilegar upplýsingar
Mál og tæknilegar upplýsingar
- Gerð: Cosiscoop Original.
- Litur: leirlitur.
- Efni: málmur.
- Gler: glært.
- Þvermál: 16 cm.
- Hæð: 30 cm.
- Eldsneyti: 190 g stunguhylki með öryggisloka.
- Logtími: um 5–6 klukkustundir á einu gashylki, eftir notkun.
- Vörunúmer framleiðanda: 5981160
.
Innifalið og aukahlutir
Innifalið og aukahlutir
Með luktinni fylgja:
- Glært gler.
- Skrautsteinar.
Gashylki fylgir ekki og er keypt sérstaklega. 190 g gashylki fást á flestum bensínstöðvum. Gættu þess að velja stunguhylki með öryggisloka sem samræmist leiðbeiningum framleiðanda.
Gas og örugg notkun
Gas og örugg notkun
Gashylki
Notaðu 190 g stunguhylki með öryggisloka, með bútani eða bútan/própanblöndu. Slík hylki fást á flestum bensínstöðvum; athugaðu að gerð og öryggisloki samræmist handbókinni.
Fjarlægðu aðeins alveg tómt hylki, þegar slökkt hefur verið á luktinni og hún kólnað. Skiptu um hylki utandyra, fjarri íkveikjugjöfum.
Notkun inni og úti
Notaðu aðeins við næga loftræstingu samkvæmt handbók. Innandyra þarf að minnsta kosti 30 m³ rými fyrir eina lukt, tilskilin loftskipti og opnanlegan glugga eða loftunaropnun. Rúmmál eitt tryggir ekki næga loftræstingu.
Ekki nota í svefnrýmum, baðherbergjum eða nálægt eldhúsum.
Staðsetning og kveiking
Undirlag skal vera slétt, stöðugt og óbrennanlegt. Hafðu minnst 1 metra bil frá óbrennanlegum hlutum og yfir luktinni og 1,5 metra frá brennanlegum efnum.
Kveiktu á löngum kveikjara við brennarann áður en þú opnar hægt fyrir gas. Slökktu með því að loka alveg fyrir gas.
Hafðu handfangið niðri við notkun; það hitnar. Ekki færa logandi lukt. Haltu börnum og gæludýrum frá henni og slökktu áður en hún er skilin eftir án eftirlits.
Luktin er skrautmunur, ekki húshitunartæki. Lestu alla handbókina fyrir notkun.
Deila

Skráðu þig á póstlista
Skráðu þig á póstlista hjá okkur og fáður strax fréttir af nýjungum